Samþykktir
1. gr. Heiti og varnarþing
Félagið heitir Ljósvist – fagfélag lýsingarhönnuða (hér eftir nefnt félagið). Heimili og varnarþing þess er í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur
Tilgangur félagsins er að:
Efla faglega stöðu og viðurkenningu hönnuða í ljósvist á Íslandi.
Vinna að hagsmunagæslu og menntun innan greinarinnar.
Styðja við þróun gæðaviðmiða og faglegra vinnubragða.
Byggja upp tengslanet innanlands og við alþjóðleg fagfélög.
Standa að faglegum viðburðum og viðurkenningum.
Stuðla að faglegri og opinni umræðu um hvernig ljósvist og lýsingarhönnun hafa áhrif á gæði rýma, vellíðan notenda og umhverfið í heild.
Félagið er félagasamtök án atvinnurekstrar og starfar ekki í hagnaðarskyni. Allar tekjur félagsins skulu nýttar í þágu tilgangs þess.
3. gr. Aðild
Bráðabirgðaákvæði að aðildarskilyrðum.
Allir stofnendur félagsins teljast stofnmeðlimir og teljast fullgildir félagsaðilar með atkvæðisrétt og kjörgengi fram að fyrsta aðalfundi. Stjórn félagsins skal leggja fram tillögu að varanlegum aðildarskilyrðum á fyrsta aðalfundi. Að þeim tíma liðnum gilda samþykkt aðildarskilyrði um stofnendur og nýja félagsaðila. Aðildarflokkar, þar á meðal fullgildir félagsaðilar og nemendaaðild, skulu skilgreindir nánar í aðildarskilyrðum sem samþykkt eru á aðalfundi.
Úrsögn úr félaginu skal send stjórn skriflega. Félagsgjald er óendurkræft. Greiði félagsaðili ekki árgjald telst hann hafa sagt sig úr félaginu. Aðild félagsins að öðrum samtökum skal samþykkt á lögmætum félagsfundi. Þá skal í fundarboði kynna þau samtök og tilgang með inngöngu félagins í samtökin. Hafi slík aðild fjárhagslegar skuldbindingar í för með sér skal leita staðfestingar aðalfundar.
4. gr. Réttindi og skyldur
Fullgildir félagsaðilar hafa atkvæðisrétt og kjörgengi.
Nemendur hafa tillögurétt og málfrelsi, en ekki atkvæðisrétt nema því sé ekki öðruvísi mælt.
Allir félagsaðilar skuldbinda sig til að fylgja siðareglum og samþykktum félagsins.
Félagsgjald er greitt árlega í júní fyrir komandi félagsár. Þeir sem ganga í félagið eftir þann tíma greiða árgjald fyrir yfirstandandi félagsár við inngöngu.
Gjaldskrá gildir fyrir félagsárið og greiðist í heild fyrirfram, nema annað greiðslufyrirkomulag sé sérstaklega ákveðið af stjórn og samþykkt á aðalfundi. Upphæð og fyrirkomulag árgjalds er ákveðin á aðalfundi.
5. gr. Siðareglur
Félagið og félagsaðilar starfa eftir siðareglum sem settar eru fram til að viðhalda fagmennsku, trausti og siðferðilegri ábyrgð meðal félagsaðila. Siðareglurnar eru hluti af faglegum skyldum allra fullgildra félagsaðila. Þær eru settar af stjórn eða nefnd, endurskoðaðar eftir þörfum og bornar undir samþykkt aðalfundar. Markmið þeirra er að tryggja góð vinnubrögð, gagnsæi og heiðarleika í starfsháttum, og stuðla að trausti almennings og samstarfsaðila á faggreininni og félaginu.
6. gr. Stjórn
Á meðan félagið er í stofnsetningu er heimilt að kjósa stjórn úr hópi stofnenda sem sýnt hafa fram á tengsl við faggreinina og skuldbinda sig til að uppfylla aðildarskilyrði félagsins.
1. Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda og ber ábyrgð á rekstri þess, stefnumótun og eftirfylgni samþykkta aðalfundar.
2. Stjórn félagsins skal skipuð 3-8 félagsaðilum, formanni og 2 – 7 meðstjórnendum.
3. Stjórn er kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn. Enginn einstaklingur skal sitja lengur en þrjú kjörtímabil samfellt nema aðalfundur samþykki framlengingu sérstaklega.
4. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum og heldur fundargerðir sem skulu vera aðgengilegar félagsfólki.
5. Stjórn er heimilt er að skipa fagnefndir og starfshópa til að sinna afmörkuðum verkefnum innan félagsins.
6. Formaður boðar til stjórnarfunda eftir þörfum eða ef aðrir stjórnarmenn óska þess.
7. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn hefur formaður úrslitaatkvæði.
8. Félagið ritar firma sitt með undirritun formanns og eins meðstjórnanda sameiginlega, eða tveggja stjórnarmanna sameiginlega.
7. gr. Fundir
Aðalfundur skal haldinn fyrir lok maí ár hvert og skal boða hans með að minnst 14 daga fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsaðila ræður úrslitum mála. Tillögur sem bera á undir atkvæði á aðalfundi skulu berast stjórn eigi síðar en einni viku fyrir fund. Fundargerð skal rituð og samþykkt í lok fundar. Hún skal varðveitt og gerð aðgengileg félagsmönnum innan tveggja vikna frá fundi. Auka aðalfundur skal haldinn ef meirihluti félagsaðila óskar þess eða þegar þörf krefur að mati stjórnar og skal boða til hans á sama hátt og til venjulegs aðalfundar. Valdsvið auka aðalfundar skal vera hið sama og aðalfundar. Almenna félagsfundi skal boða með minnst viku fyrirvara. Stjórn getur boðað gesti eða ráðgjafa til fundar með málfrelsi, en án atkvæðisréttar.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Samþykktarbreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
8. gr. Fjármál
Félagið er rekið af félagsgjöldum og öðrum lögmætum tekjum. Stjórn ber ábyrgð á fjármálum og ársreikningur skal lagður fram á aðalfundi. Félagið skal fylgja lögum um bókhald og gera grein fyrir fjárreiðum sínum á gagnsæjan hátt.
Rekstrarafgangi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins. Félagsmenn eiga ekki rétt til arðgreiðslna eða fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins.
Reikningsár félagsins er almanaksárið, 1. janúar til 31. desember.
9. gr. Slit félagsins
Slit félagsins skulu borin upp á aðalfundi og fá 2/3 samþykki mættra félagsaðila. Við slit skal eignum félagsins ráðstafað til verkefna eða samtaka sem vinna að eflingu ljósvistar, fagmenntunar eða sambærilegra markmiða í þágu almannaheilla. Félagsaðilar njóta ekki fjárhagslegs ávinnings við slit.
Nýjustu útgáfu af samþykktum skal birta á vefsvæði félagsins.
Samþykktir þessar voru samþykktar á stofnfundi félagsins.
Dagsetning: 22.05.2025.